|
Um FÍF Þann 18. janúar 1996 var Félag Íslenskra Fíkniefnalögreglumanna (FÍF) stofnað. Tilgangur félagsins er eins og segir í lögum þess að auka víðsýni félagsmanna þess, standa fyrir útgáfu á ýmsum upplýsingaritum er snúa að fíkniefnamálum og efla þekkingu félagsmanna þess og annarra á þeirri vá sem fíkniefni og fíkniefnaneysla er í þjóðfélaginu. Félagsmenn geta verið þeir lögreglumenn sem verja meirihluta af vinnutíma sínum í rannsóknir fíkniefnamála. Hvatinn að stofnun félagsins var sá að lögreglumaður sem starfaði að fíkniefnavörnum í forvarnadeild lögreglunnar í Reykjavík vantaði kennsluefni. Hann var með íslenska þýðingu á upplýsingariti sem var taldi að hentaði vel. Rit þetta var gefið út af fíkniefnadeild lögreglunnar í Oslo og Félagi Norskra Fíkniefnalögreglumanna árið 1996, undir heitinu "Illustrert informasjonsmateriale om narkotika" og var það fjórða útgáfa þess. Það var fyrst og fremst ætlað foreldrum, kennurum og öðrum þeim sem koma að uppeldi. Haft var samband við nokkra aðila, sem leist vel á ritið en engin var tilbúinn að gefa það út eða veita peningum í útgáfuna. FÍF var því stofnað til að fá kostunaraðila og gefa út ritið. Síðan var samið við einkafyrirtæki sem sérhæfði sig í útgáfumálum, og tókst góð samvinna milli þess og FÍF. Mjög margir aðilar, einstaklingar og fyrirtæki styrktu gerð þessa rits. Félagið hafði í upphafi ekkert annað hlutverk en að gefa út nefnt rit og hefði sennilega lognast útaf ef ekki hefðu verið afgangur af útgáfufénu. Hann var notaður til að kaupa tölvur sem voru gefnar öllum meðferðarheimilum ríkisins fyrir unglinga í fíkniefnavanda. Stjórnarmenn FÍF á þeim tíma voru ekki miklir fjármálamenn, fremur en nú, og eftir tölvugjafirnar var reikningur félagsins allt í einu kominn í mínus. Það var því ekki um annað að ræða en halda áfram út í nýja fjáröflum. Síðan þetta var hefur FÍF staðið fyrir mörgum verkefnum. Gerð var auglýsing sem sýnd var mjög oft á öllum íslensku sjónvarpsstöðvunum. Gefið út ritið Teikn og einkenni sem er ætlað til að auðvelda fagfólki að þekkja neytanda fíkniefna. Dagbók dauðand, bók með reynslusögum fíkniefnaneytanda. Síðastliðið haust hélt FÍF viku mámsstefnu fyrir fíkniefnalögreglumenn. Fengnir voru 10 erlendir kennarar frá 6 löndum sem voru sérfræðingar hver á sínu sviði lögreglumálefna. Þar kom mikil þekking til alls hópsins. FÍF hefur líka styrkt félagsmenn sína til náms bæði hér á landi og erlendis. FÍF hefur staðið fyrir mörgu fleiru sem ekki verður upptalið hér.
|