|
Það er ekki fyrr en nú síðustu árum að ýmis róandi lyf og svefnlyf hafa verið flokkuð sem ávanabindandi lyf. Þó hefur misnotkun þessara lyfja verið þekkt lengi. Þessi lyf er einungis hægt að fá skv. læknisráði og aðeins fáanleg gegn framvísun lyfseðils. Misnotkun lyfja sem fengin eru samkvæmt lyfseðlum er talsvert algeng en þó mismikil eftir löndum. Misnotkunin og vandamál sem stafa af henni virðist vera minni í löndum þar sem heilbrigðisyfirvöld hafa kynnt almenningi rækilega afleiðingar neyslu lyfjanna og læknastéttinni þeirra ábyrgð hvað þetta varðar. Vandinn er minni þar sem settar hafa verið strangar reglur um útgáfu og afhendingu lyfjanna. Víða hafa verið reknar herferðir til að upplýsa fólk um hvernig má vinna bug á ýmsum vandamálum án þess að nota róandi eða örvandi lyf til að hjálpa sér yfir þau. Slíkar herferðir hafa skilað sér í auknum árangri við að draga úr misnotkun læknislyfja.
|