laugardagur, 04 september 2010
Forsíða arrow Amfetamín  
 
 
 
Amfetamín PDF Prenta

SÖGULEGUR BAKGRUNNUR   

Amfetamín er gerviefni (kemískt efni) sem fyrst var framleitt árið 1887. Í kring um 1930 vakti amfetamín áhuga lækna um allan heim og var jafnvel álitið nýtt töfralyf. Hernaðarsérfræðingar höfðu lengi vitað um örvandi áhrif kókaíns.

Amfetamín reyndist hinsvegar taka kókaíninu fram um margt, sumpart vegna þess að hægt er að borða amfetamín og í annan stað vegna þess að áhrifin endast lengur. Í heimsstyrjöldinni síðari notuðu hinar stríðandi þjóðir amfetamín til að halda hermönnum sínum lengur að á vígvöllunum. Í sumum löndum var amfetamíni úthlutað til þeirra verkamanna sem unnu í vopnaframleiðslu til að halda hámarksafköstum.

Þau vandamál sem amfetamín hefur kallað yfir þjóðfélög nútímans eiga rætur sínar að rekja til notkunar hermálayfiralda á efninu, ásamt vinsældum þess innan vébanda læknastéttarinnar. Á eftirstríðsárunum stóðu mörg lönd uppi með gífurlegt vandamál vegna amfetamínneyslu, t.d. töldust um tíma 2 milljónir manna í Japan til stórneytenda amfetamíns.

Þegar nútímabylgja fíkniefna hófst á Norðurlöndunum á 7. áratugnum réðu þau efni sem áhrif hafa á miðtaugakerfið, s.s. hass og amfetamín lögum og lofum á fíkniefnamarkaðnum. Markaðsverð á amfetamíni í Evrópu hefur verið sveiflukennt. Það naut mikilla vinsælda á 7. og 8. áratugnum en varð að lúta í lægra haldi fyrir heróíni um miðjan 8. áratuginn. Í dag hefur neysla amfetamíns aftur færst verulega í aukana. Enn þann dag í dag heldur amfetamín velli sem mest notaða örvandi efnið á Norðurlöndunum.

FRAMLEIÐSLULÖND

Flest lönd eru vel í stakk búin til að framleiða amfetamín og hafa framleitt það á löglegan hátt til nota í læknisfræðilegum tilgangi. Í sumum löndum viðgengst enn töluvert frjálslyndi gagnvart amfetamíni þar sem framleiðsla og sala amfetamíns í formi megrunarlyfja er lögleg. Læknisfræðilegt gildi amfetamíns er viðurkennt þegar um er að ræða meðferð ofvirknisjúklinga.

Meðferð sem byggir á notkun amfetamíns hefur róandi áhrif á sjúklingana. Amfetamín er framleitt í skjóli laga víðs vegar um heiminn en hvergi er eins mikið framleitt ólöglega af efninu og í Evrópu. Þau lönd sem í dag framleiða amfetamín í einhverjum mæli eru: Pólland, Holland, Danmörk, Svíþjóð, Þýskaland og Bretland.

 
 
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement
Advertisement