|
Fræðslu og forvarnarritið Fíkniefni, vímuefni og heilsuspillandi efni er gefið út af félagi íslenskra fíkniefnalögreglumanna FÍF í samvinnu við Svenska narkotika polis föreningen SNPF og Mediahuset í Gautaborg. Ritið fæst á öllum þjónustustöðvum N1 og kostar kr. 3.000,-
Höfundur ritsins er Jonas Hartilius og er hann einn fremsti sérfræðingur í heiminum í dag um fíkniefni, samsetningu þeirra og vikni. Hann er ráðgjafi hjá ýmsum stofnunum í Evrópu. Fjallað er á hlutlausan hátt um fíkniefni frá öllum hliðum í ritinu. Farið yfir sögu og virkni fíkniefna, fjallað um hliðarefni, neyslu og neyslumynstur, áhöld, afleiðingar og ávanabindingu. Í blaðinu er fjöldi mynda sem sýna hinar ýmsu útfærslur á fíkniefnunum. Ritið skiptist í 10 kafla sem fjalla almennt um fíkniefni, kannabis, ópíöt, efni sem örva miðtaugakerfið, ofskynjunarefni, lyf, örvandi lyf, heilsuspillandi efni, uppgötvun á lyfja misnotkun og vímu og orðskýringar. Ákveðið var að gefa út rit sem svarar flestum spurningum um fíkniefni þar sem áhugi hefur verið fyrir að fræðast meira um þessi efni, afleiðingar þeirra og hvernig má þekkja þau. FÍF óskar þess að útgáfa ritsins verði til þess að sem flestir geti kynnt sér innihaldið og öðlist með því þekkingu á því hvað fíkniefni eru, hvernig þau líta út, orsakir og afleiðingar með neyslu á þeim. Ritið er fyrst og fremst fræðslurit, þar sem safnað er saman flestum staðreyndum um fíkniefni. Ákveðið var í upphafi að hafa ritið ekki auglýsingarit, þ.e. fylla það af auglýsingum til að standa undir kostnaði. FÍF stendur að mestu sjálft undir kotnaði en fékk til liðs við sig tvo sterka aðila, Actavis og N1 sem hjálpaði okkur mikið. Þetta er dýr fjárfesting hjá FÍF og við vonum að almenningur taki vel á móti ritinu og fjárfesti í þeirri forvörn sem við teljum að sé til staða með því. Félag íslenskra fíkniefnalögregumanna FÍF var stofnað þann 18. janúar 1996. Tilgangur félagsins er samkvæmt lögun þess er að auka víðsýni félagsmanna, standa fyrir útgáfu á ýmsum upplýsingaritum er snúa að fíkniefnamálum og efla þekkingu félagsmanna sem og annarra á þeirri vá sem fíkniefni og fíkniefnaneysla er í þjóðfélaginu. |